Vaðlar , 426 Flateyri
350.000.000 Kr.
Lóð/ Jörð
11 herb.
1517 m2
350.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
8
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
315.125.000
Fasteignamat
42.771.000

Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Lögbýlið Vaðlar Ísafjarðarbæ, landnr. L141026. Um er að ræða vel uppbyggt kúabú í fullum rekstri. Mjög gott lausagöngufjós með allt að 61 legubási og mjaltaþjóni. Mjög snyrtilegt og skemmtilega skipulagt íbúðarhús. Eldra íbúðarhús sem býður upp á góða nýtingarmöguleika. Rafstöð sem mögulegt er að stækka. Unnið er að byggingu uppeldishúss.
Ljósleiðari kominn inn og tengdur. 3ja fasa rafmagn frá Orkubúi Vestfjarða. Mjög gott, lokað vatnsból.
Greiðslumark er 286.958 lítrar í mjólk og 77,2 ærgildi í sauðfé.
U.þ.b. 12 km. eru á Flateyri og u.þ.b. 20 km. á Ísafjörð þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.


Skv. skráningu Fasteignaskrár eru byggingar eftirfarandi:
Íbúðarhús byggt 1988, samtals skráð 143 fm. Inn í þá skráningu vantar 13,1 fm viðbyggingu, 14,2 fm sólstofu og milliloft.
Íbúðarhús byggt 1948, samtals skráð 128 fm en er nokkru stærra að gólfleti þar sem efri hæðin er undir súð.
Fjós byggt 2003, samtals 561 fm.
Véla- og verkfærageymsla byggð 1981 samtals 145 fm.
Alifuglahús byggt 1963, samtals 11,5 fm.
Rafstöð byggð 1965 samtals 14,9 fm.
Eldri útihús byggð á árunum 1949 - 1965 samtals 525,7 fm
Unnið er að byggingu uppeldishúss sem er skv. teikningum 508,2 fm.
Ræktað land jarðarinnar er 15 - 16 hektarar og hefur verið heyjað á nærliggjandi jörðum.
Gróið land jarðarinnar er talið vera nærri 90 hektarar.

Nánari lýsing:
Íbúðarhúsið er timburhús á steyptum grunni og skiptist í Forstofu, rúmgóða og bjarta stofu, bjarta sólstofu, gott eldhús, glæsilegt, rúmgott baðherbergi, þrjú svefnherbergi (upphaflega fjögur svefnherbergi og auðvelt að breyta til baka), þvottahús og bakinngang. Í hluta hússins er uppsett milliloft sem hentar vel sem skrifstofuaðstaða eða svefnaðstaða.
Eldra íbúðarhúsið  fær rafmagn frá núverandi rafstöð. Húsið er upphaflega timburhús en síðar eru útveggir steyptir. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og geymslur.
Fjósið er stálgrindarhús á steyptum grunni og er lausagöngufjós með 43 legubásum og aðgengilegt væri að fjölga í 61 legubás. Mjaltaþjónn er í fjósi. Eftirlitsmyndavélakerfi er í fjósinu. Við fjósið er unnið að byggingu uppeldishúss sem skv. teikningum tengist fjósinu og er gert ráð fyrir að haughús undir nýbyggingu þjónusti fjósið. Til staðar eru gólfbitar í uppeldisfjósið sem fylgja með við sölu.
Véla- og verkfærageymsla er einföld að gerð en nýtist vel sem vinnuaðstaða eða geymsla.
Rafstöðin framleiðir í dag að hámarki 12 kw. 3x220 v. og er rafmagnið notað í eldra íbúðarhúsi og eldri útihúsum, en í undirbúningi er endurnýjun og stækkun stöðvarinnar upp í nærri 60 kw. framleiðslu. Til staðar eru rör í virkjunina sem fylgja með við sölu.
Eldri útihús eru sambyggð og er mögulegt að nýta þau með ýmsum hætti.

Til staðar er góður og öflugur tækjakostur sem fylgir með skv. tækjalista.

Góð malarnáma er á jörðinni.


Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,8%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.