Þorláksgeisli 5, 113 Reykjavík (Grafarholt)
77.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
101 m2
77.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
57.110.000
Fasteignamat
69.450.000
Opið hús: 12. september 2024 kl. 18:00 til 18:30.

Eignatorg kynnir: Opið hús Þorláksgeisla 5, íbúð 202 fimmtudaginn 12. september milli kl. 18:00 og 18:30.
Glæsileg og sérlega vel umgengin 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Þvottahús innan íbúðar. Húsið er staðsteypt og steinað að utanverðu. Skemmtileg staðsetning. Gott rými á milli húsa.

Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðin 94,7 fm og sérgeymsla á jarðhæð 7,1 fm. Samtals er eignin því skráð 101,8 fm auk stæðis í bílageymslu.

Nánari lýsing: Forstofa með parketi á gólfi og forstofuskápum. Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og skolvaski. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, borðkrók og gluggum á tvo vegu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Stofa með parketi á gólfi, gluggum til vesturs og hurð út á lokaðar, flísalagðar vestur svalir. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, skápum og hurð út á flísalagðar suðvestursvalir. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari, sturtu, innréttingu handklæðaofni og upphengdu salerni.
Sérgeymsla er á jarðhæð.
Stæði í lokaðri bílageymslu og er gert ráð fyrir bílhleðslu.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.