Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Sérlega glæsilega hannað, vel skipulagt og bjart 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið verður klætt með standandi, litaðri álklæðningu og standandi viðarklæðningu. Þakkantur er álklæddur og gluggar eru með álkápu. Lóðin verður grófjöfnuð og að innan verður húsið tilbúið til innréttinga, veggir sparslaðir og fyrri málningarumferð komin. Mögulegt er að kaupa eignina lengra komna.Skv. skráningu Þjóðskrár er íbúðarhlutinn 149,9 fm og bílskúrinn 30,3 fm. Samtals er eignin því skráð 180,2 fm.
Nánari lýsing: Húsið er timburhús á steyptum sökkli. Skv. teikningum skiptist húsið í forstofu, tvö baðherbergi, rúmgóða og bjarta stofu með gólfsíðum gluggum til suðurs og hurð út, opið, rúmgott eldhús þar sem gert er ráð fyrir eyju og glugga, fjögur rúmgóð svefnherbergi og bílskúr.
Tvö bílastæði verða á lóð hússins.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.