Urðarmói 15, 800 Selfoss
109.700.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
193 m2
109.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
101.100.000
Fasteignamat
95.100.000

Eignatorg kynnir: Sérlega glæsilegt, bjart og vandað einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi. Aukin lofthæð er í öllu húsinu og loft í stofu og eldhúsi upptekin. Í dag eru þrjú svefnherbergi í húsinu en skv. teikningu er gert ráð fyrir einu herbergi í viðbót og væri einfalt að stúka það af. Húsið stendur innst í lokaðri götu. Mjög stór sólpallur er við húsið.

Til greina kemur að taka ódýrari eign upp í kaupverð.


Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðarhlutinn 147,5 fm og bílskúrinn 45,7 fm. Samtals er eignin því skráð 193,2 fm.

Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum. Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi, gluggum á tvo vegu og tvöfaldri hurð út á sólpallinn. Opið, rúmgott eldhús með korkflísum á gólfi, glæsilegri og veglegri innréttingu, eldavélareyju, tveimur ofnum, spanhelluborði og gluggum á tvo vegu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og amerískum ísskáp í innréttingu. Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, sturtu, nuddbaðkari, innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og glugga. Herbergi með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi og skápum. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, klæðaskápum og hurð út. Inn af hjónaherberginu er glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu, innréttingu, glugga og hurð út á sólpallinn. Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu og skolvaski. Gert er ráð fyrir vélum í vinnuhæð í þvottahúsinu.
Innangengt er í bílskúrinn frá þvottahúsinu. Bílskúrinn er rúmgóður með flísum á gólfi, glugga, gönguhurð, geymslulofti og rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð.
Hiti er í öllum gólfum.
Sólpallurinn er sérlega plássgóður.
Hiti er í innkeyrslu að bílskúr og gönguleið að húsinu.
Kaldur geymsluskúr er við sólpallinn.
Kalt geymsluloft er yfir hluta hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.