Eignatorg kynnir: Eignin er seld.
Nýtt á skrá - Glæsileg, björt og skemmtilega skipulögð 2ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í vönduðu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri. Stæði í upphitaðri bílageymslu. Glerlokun á svölum. Þvottahús innan íbúðar. Tvær geymslur, önnur innan íbúðar. Fallegt útsýni er frá íbúðinni. Húsvörður er starfandi í húsinu. Í sameign hússins er húsvarðaríbúð og sameiginlegur samkomusalur. Töluvert félagsstarf er í húsinu og afar vel haldið utan um húsfélagsmál.
Eignin er laus og til afhendingar við undirritun kaupsamnings.Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðin 90,2 fm og sérgeymsla í kjallara 3,9 fm. Samtals er eignin því skráð 94,1 fm auk stæðis í bílageymslu.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum. Geymsla með parketi á gólfi. Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, gluggum á tvo vegu og hurð út á flísalagðar og lokaðar austursvalir. Opið eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu, eldavélareyju, uppþvottavél sem fylgir og borðkrók. Inn af eldhúsinu er þvottahús með flísum á gólfi, vinnuborði og skolvaski. Herbergi með parketi á gólfi og klæðaskápum. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, sturtu, innréttingu, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Í kjallara er sérgeymsla.
Í kjallara er stæði í bílageymslu og er búið að leggja fyrir hleðslustöð.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.