Eignatorg kynnir: Íbúðarhúsið og jörðina Nýlendu, Rangárþingi eystra. Um er að ræða 55,6 hektara jörð með landi að sjó. Á jörðinni stendur einstakt íbúðarhús sem hefur verið endurnýjað mjög mikið á undanförnum tveimur árum. Á jörðinni stendur einnig hlaða sem er einföld að allri gerð en hefur góða möguleika á margs konar nýtingu. Stórfenglegt útsýni er frá eigninni og þar er mjög fjölskrúðugt fuglalíf.Íbúðarhúsið er samþykkt til gistisölu og hefur verið í útleigu til ferðamanna við mjög góðan orðstír. Tekjur eru umtalsverðar, útlit mjög gott fyrir árið 2025 og eingöngu um að ræða þrjár nætur eða meira í senn. Útleigunni er stýrt í gegnum umsjónarkerfið GoDo sem gerir allt utanumhald mjög einfalt. Sjá umsagnir gesta á
https://www.booking.com/Share-93H4PC Jörðin er afar friðsæl, á henni er góð beit fyrir hesta og möguleiki á upprækt. Landið nær niður að sjó og er aðeins fimmtán mínútna gangur frá íbúðarhúsinu niður í fjöru, einnig er bílfært þangað fyrir jepplinga.
Eignin er í eigu félags með góða sögu frá 2014 sem rekur ferðaþjónustu í húsinu og heldur það á rekstrarleyfum og öðru tengdu rekstrinum.
Eignin er boðin til sölu ásamt húsbúnaði, en einnig er möguleiki að kaupa félagið í heild sinni.
Skv. skráningu Fasteignaskrár er jörðin 55,6 hektarar, íbúðarhúsið 137,5 fm og hlaðan 85,3 fm. Landamerki voru hnitsett og staðfest 2022.
Nánari lýsing: Íbúðarhúsið sem er afgirt hefur verið endurnýjað verulega á undanförnum tveimur árum, s.s.: Allar lagnir að og frá húsinu og innanhúss, ný rotþró, nýtt þak sett á húsið, skipt um alla glugga og hurðir í húsinu, sett gólfhitakerfi á neðri hæð hússins, innfelld lýsing, allar innréttingar endurnýjaðar, húsið einangrað að utanverðu og klætt með lituðu stáli. Allar raflagnir og rafmagnstafla er nýtt, rafmagn er þriggja fasa. Jarðvegsskipt og drenað meðfram íbúðarhúsi. Neysluvatn kemur úr borholu í sameign svæðisins.
Húsið skiptist í forstofu, geymslu, stofu, eldhús, borðstofu og herbergi á fyrstu hæð. Risið er óinnréttað, búið er að leggja gólf og mögulegt er að innrétta þar gott íbúðarrými með sérinngangi.
Risið er með kvisti með glugga og er eitt opið rými.
Útilýsing sem er stýrð með sólúri.
Hlaðan er skráð í fasteignaskrá, járnklædd timburgrind sem þarfnast viðhalds en nýtist sem geymsla.
Hér er um að ræða veglega og sérstaka eign með góðar tekjur miðsvæðis á Suðurlandi.
Húsið er skráð íbúðarhús svo þar er hægt að halda lögheimili.
ATH. landamerki eins og þau eru teiknuð á loftmynd í auglýsingu eru ónákvæm. Hnitsettur uppdráttur er það sem gildir.Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,8%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.