Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Falleg, björt, rúmgóð og skemmtilega skipulögð 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli með sérinngangi af svölum. Þvottahús og geymsla innan íbúðar.Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðin samtals 97,7 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og hurð út á suðursvalir. Opið eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu og glugga. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Geymsla með flísum á gólfi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og skápum. Þvottahús með flísum á gólfi, skolvaski og glugga.
Á hæðinni er sameiginleg hjólageymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.