Eignatorg kynnir: O
pið hús Starengi 28, íbúð 101 þriðjudaginn 10. júní, milli kl. 18:00 og 18:30.Nýtt á skrá - Falleg 86,8 fm, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli. Sérinngangur. Þvottahús innan íbúðar. Rúmgóður, lokaður sólpallur út frá stofu.Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskáp. Stofa með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og hurð út á suðurverönd. Eldhús með flísum á gólfi, fallegri innréttingu, uppþvottavél og glugga. Herbergi með parketi á gólfi og skáp. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari og innréttingu. Þvottahús með flísum á gólfi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og klæðaskápum.
Sérgeymsla er á hæðinni ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 85.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.