Geirakot 1, 356 Snæfellsbær
85.000.000 Kr.
Einbýli
6 herb.
292 m2
85.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1970
Brunabótamat
74.580.000
Fasteignamat
43.635.000

Eignatorg kynnir: Geirakot 1, Snæfellsbæ. Um er að ræða einbýlishús með tvöföldum bílskúr á einstaklega fallegum útsýnisstað. Húsið er á einni hæð og mjög mikið endurnýjað og við það stór bílskúr. Húsið er kynt með öflugri varmadælu. Ljósleiðari komin inn og tengdur. 3ja fasa rafmagn. Íbúðarhúsið er steinsteypt á einni hæð og hefur verið endurnýjað verulega á undanförnum árum. M.a. hefur húsið verið einangrað og klætt með viðhaldsfríu undirkerfi og álklæðningu í bland við bandsagaða timburklæðningu, skipt um timbur í þaki og nýr þakdúkur settur á, skipt um alla glugga og útihurðir, allar lagnir endurnýjaðar í húsinu á árunum 2012-2018, eldhús og baðherbergi endurnýjuð og byggð rúmgóð 40 fm sólstofa með hita í gólfi og mætti nýta sem svefnherbergi.
Heimreið með bundnu slitlagi. Einungis 6 km eru til Ólafsvíkur þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.

Stærð eignarinnar er eftirfarandi:
Íbúðarhús byggt 1970, talið vera nærri 200 fm.
Bílskúr byggður 1985, skráður 60,1 fm en talin vera nærri 100 fm.
Lóðin er eignarlóð, skráð 3.010. fm.

Nánari lýsing:
Húsið skiptist í forstofu, rúmgott eldhús, rúmgóða og bjarta stofu, sólstofu, bakinngangur og gengt þaðan inn í bílskúr, þvottahús, snyrtingu, svefnherbergisgang, baðherbergi, fjögur svefnherbergi. Frá þvottahúsinu er gengt út á rúmgóðan sólpall með skjólveggjum, þar sem er heitur rafmagnspottur.
Hiti er í öllum gólfum. Vatn í vatn varmadæla með innbyggðum heitavatnskút.
Bílskúrinn er rúmgóður, tvöfaldur, en óeinangraður. Bílskúrinn er með tveimur nýjum innkeyrsluhurðum, endurnýjuðum gluggum og endurnýjuðu þaki. Í bílskúrnum er sundlaug sem í dag er nýtt sem geymsla.

Gott kalt vatn úr lind inni á landi jarðarinnar.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,8%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.