Eignatorg kynnir: Eignin er seld og í fjármögnunarferli.
Nýtt á skrá - Pallabyggt einbýlishús byggt 1915 ásamt véla- og verkfærageymslu byggð 1961 sem standa á 4.330 fm eignarlóð.Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðarhúsið 114,2 fm og véla- og verkfærageymslan 26,3 fm.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskáp. Hol með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi. Nokkur þrep eru niður á neðsta pall. Geymsla með glugga. Þvottahús / baðherbergi með máluðu gólfi, sturtuklefa, salerni, skolvaski og glugga. Eldhús með parketi á gólfi, innréttingu og glugga. Stofa með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu.
Frá holi eru sex þrep upp á efsta pall. Hol með dúk á gólfi og innbyggðum geymsluskápum. Herbergi með dúk á gólfi. Inn af því herbergi með dúk á gólfi. Herbergi með dúk á gólfi. Lítið herbergi / skrifstofa með glugga.
Ljósleiðari komin inn.
Sólpallur með skjólveggjum stendur við húsið.
Véla- og verkfærageymslan er óeinangruð með innkeyrsluhurð, gönguhurð og gluggum.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.