Austurmörk 6, 861 Hvolsvöllur
49.000.000 Kr.
Lóð/ Byggingarlóð
0 herb.
0 m2
49.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
7.550.000

Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Einstakar einbýlishúsalóðir sem standa á mjög rólegum og veðursælum stað vestan undir Eyjafjöllum, skammt frá Seljalandsfossi. Lóðirnar eru í sérlega skemmtilegu landslagi og njóta glæsilegs útsýnis. Um er að ræða eignarlóðir. Lóðirnar eru í u.þ.b. 28 mínútna akstursfjarlægð frá Hvolsvelli þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.

Samtals eru skipulagðar 18 einbýlishúsalóðir á hinu deiliskipulagða svæði sem nær til 52,8 hektara svæðis úr landi jarðarinnar Syðstu-Merkur, Rangárþingi eystra og er að stærstum hluta norðan og vestan Merkurvegar (vegnr. 248). Lóðirnar eru frá 1,6 hekturum upp í 3,3 hektara að stærð. Í þessum áfanga verða einungis seldar 4 - 6 lóðir.

Austurmörk 6 er 27.648 fm. að stærð (u.þ.b. 2,8 hektarar) og stendur efst á skipulagssvæðinu. Lóðin er mótuð af landslagi með einstaklega skemmtilegum hætti. Aðkoma að lóðinni er af Merkurvegi með Austurmörk 5.

Deiliskipulag svæðisins var unnið af Gláma-Kím arkitektum. Í greinargerð deiliskipulags er m.a. eftirfarandi umfjöllun:
Landið býr yfir gæðum sem verða að teljast einstakar fyrir íbúðarhús. Landfræðileg staðsetning við rætur Eyjafallajökuls, stórbrotið útsýni, sérstakt landslag og einstök tenging við náttúruöflin eru allt þættir sem styðja undir gæði, og setja kröfur á yfirbragð mannvirkja sem þar rísa.
Aðstæðurnar bjóða sérlega vel upp á fallega hönnuð mannvirki sem virða umhverfið og landslagið. Staðurinn er ægifagur og er víðsýnt til norðurs og vesturs. Frá landinu sést vel yfir í Fljótshlíðina, yfir Markarfljótseyrarnar, að Stóra Dímon, Vatnsdalsfjalli, Þríhyrningi,  Þórólfsfelli og Tindfjöllum. Það er fallegt útsýni til austurs og suðurs að landslaginu vestanverðu í rótum Eyjafjallajökuls og til Dagmálafjalls, og Hádegishnjúks.
Leitast er við að ná markmiðum um góða ásýnd svæðis, að byggingar falli vel að umhverfinu og frágangur lóða verði til fyrirmyndar.

Á lóðunum er heimilt að byggja íbúðarhús með bílskúr, á einni eða tveimur hæðum, hvert um sig allt að 450 fm. auk 100 fm. vinnustofu og/eða gróðurhús. Samtals byggingamagn er því 550 fm.
Lóðirnar fá neysluvatn frá Vatnsveitu Vestmannaeyja og er vatnslindin innan jarðarinnar Syðstu-Merkur. Ekki er til staðar hitaveita. Rafmagn kemur frá RARIK. Míla sér um ljósleiðaratengingar.
Lóðirnar verða afhentar með neysluvatni og vegi að lóðarmörkum.

Ferðaþjónustustarfsemi og húsdýrahald er óheimilt á lóðunum en gæludýrahald er leyfilegt.

Ath.: Teiknaðar línur inn á ljósmynd af lóðarmörkum í auglýsingu eru einvörðungu til skýringar og kunna að vera ónákvæmar. Merkjalýsing er það sem gildir.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.