Kelduland 7, 108 Reykjavík (Austurbær)
58.500.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
51 m2
58.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1971
Brunabótamat
30.750.000
Fasteignamat
53.650.000
Opið hús: 09. júlí 2026 kl. 18:00 til 18:30.

Eignatorg kynnir: Opið hús Keldulandi 7, íbúð 102 fimmtudaginn 9. júlí milli kl. 18:00 og 18:30.
Nýtt á skrá - Falleg og töluvert endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sólverönd. Gott útsýni. Eignin er laus og til afhendingar við undirritun kaupsamnings.

Skv. skráningu Fasteignaskrár er íbúðin 46,4 fm og sérgeymsla í kjallara 5,1 fm. Samtals er eignin því skráð 51,5 fm.

Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi. Opið eldhús með flísum á gólfi og fallegri innréttingu. Björt stofa með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, klæðaskáp og hurð út á steinlagða suður sólverönd. Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkari, innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla með hillum er í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Sér heitavatnsmælir fyrir hverja íbúð.
Á undanförnum árum hefur verið skipt um teppi á stigagangi, hann málaður, skipt um aðal útidyr og aðaltafla endurnýjuð, ásamt því að settur var upp mynddyrasími og frárennslislagnir endurnýjaðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 85.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.